Við í Dekurdýrum gætum ekki verið stoltari af honum Ove „okkar“ en hann gerði sér lítið fyrir á síðustu sýningu Hundaræktarfélags Íslands og vann „Besti Öldungur Sýningar“. Ove er 8 ára gamall Pekingese hundur. Hann heitir eftir sænsku bókinni „Maður sem heitir Ove“ en hann er einmitt frá Henrikville ræktun í sama landi sem hefur ræktað Pekingese hunda í tugi ára.


Ove er mikill karakter, sjálfsöruggur, yfirvegaður og blíður hundur sem skilar sér í hringnum því hann elskar að mæta á sýningar. Hann hefur hlotið titlanna Alþjóðlegur, Norðurlanda og Íslenskur meistari og hefur nokkrum sinnum hlotið sæti í úrslitum tegundarhóps 9 og alltaf lent í sæti í „Besti Hundur Sýningar“ á deildarsýningum smáhundadeildarinnar. Ove er frábær sýningarhundur sem aldrei stígur feilspor í hringum en á sama tíma er hann algjör knúsikarl og elskar að leika sér með dót.
Eigandi Ove er Anja Björg sem er einnig einn af snyrtum Dekurdýra og hefur hún deilt með okkur hvaða vörur hún notar í sýningarbaðið fyrir Ove.

Í fyrstu umferðina af sjampói notar Anja Björg „TAURO PRO LINE ULTRA NATURAL CARE DEEP CLEAN SHAMPOO ALL COAT TYPE“. Þannig nær hún feldinum á Ove tandurhreinum án þess að þurrka feldinn.
Næst notar hún „PLUSH PUPPY NATURAL ALL PURPOSE SHAMPOO WITH HENNA” sem gefur feldinum einstaklega fallegan glans án þess að hafa áhrif á feldgerð hundsins, t.d. eins og mýkja hann eða gera hann of þungann.
Áður en Anja Björg blæs Ove spreyjar hún hann með „TAURO PRO LINE ULTRA NATURAL DETANGLING LEAVE-IN CONDITIONER ALL COAT TYPE“ til að verja feldinn gegn ofþurrki og slitum meðan hann er blásinn. Hún spreyjar hann einnig með „TAURO PRO LINE ULTRA NATURAL CARE 6 IN 1 MULTI-FUNCTIONAL PURE MIST ALL COAT TYPE“ sem er alkalín vatn sem er mjög fjölvirkt og frábært til að nota til að koma jafnvægi á húð og feld eftir böðun. Það virkar einnig mjög vel sem bakteríu eyðandi spray vegan sýrustigs þess og frábært til að hreinsa augu og eyru.
Á milli sýninga notar Anja Björg „TAURO PRO LINE ULTRA NATURAL CARE INTENSE HYDRATE SHAMPOO ALL COAT TYPES“ og „TAURO PRO LINE ULTRA NATURAL CARE INTENSE HYDRATE MASK ALL COAT TYPE“ sem er rakabomba sem hentar vel í allar feldgerðir. Hún notar einnig alltaf spreyin tvö frá Tauro Pro Line þegar hún blæs og burstar Ove.
Við óskum Ove og Önju Björgu innilega til hamingju með árangurinn á sýningum og þökkum henni fyrir að deila „Sýningarbaðinu“ með okkur.



