SKILMÁLAR

Dekurdýr selur vandaðar vörur fyrir hunda og ketti. Verslunin er staðsett á Dalvegi 18 í Kópavogi, og á netinu á slóðinni www.dekurdyr.is.

Dekurdyr.is sendir vörur gegn gjaldi með Póstinum um land allt. Einnig er hægt að versla vörur á netinu og sækja í versluna okkar á Dalvegi 18.

Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og dekurdyr.is.

Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla.

Það tekur í flestum tilvikum 0-3 daga að fá vöruna í hendurnar eftir að pöntun er móttekin, en pantanir eru þó að jafnaði ekki sendar út um helgar.

 

UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

Seljandi er Hvuttakot ehf., kt. 680206-1120, Dalvegi 18, 200 Kópavogi. 

 

VERÐ

Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK). Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna.

 

GREIÐSLUMÁTAR

Á dekurdyr.is er boðið er upp á að greiða með greiðslukorti eða með Netgíró.

Hægt er að greiða með greiðslukortum frá Visa og Eurocard/Mastercardí gegnum örugga greiðslugátt frá Teya á Íslandi.

SKILAFRESTUR OG ENDURGREIÐSLURÉTTUR

Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaup og er vara endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt:

  • Varan skal vera ónotuð.
  • Vara skal vera í söluhæfu ástandi.
  • Vara þarf að vera í upprunalegum umbúðum og skulu þær vera í söluhæfu ástandi.
  • Greiðslukvittun þarf að fylgja með sendingunni.
  • 14 daga endurgreiðslufrestur hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.

Skila má vöru til Dekurdýar á Dalvegi 18, 200 Kópavogi.

Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.

Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.

HÖFUNDARÉTTUR OG VÖRUMERKI

Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.dekurdyr.is eru eign Hvuttakot ehf. og er öll afritun og endurdreyfing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá Hvuttakot ehf. 

 

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

 

VARNARÞING

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

 

HAFA SAMBAND

Velkomið er að hafa samband í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 852-8242 ef einhverjar spurningar vakna.